-

Portrett myndataka
Hvort sem þú vilt nýjar myndir fyrir portfolio, ferilskrá, fermingu, útskrift eða einfaldlega fallegar myndir af þér, þá er hægt að sníða myndatökuna að þínum óskum og þörfum.
Portrett í stúdíói
Um 30 mínútna myndataka í stúdíói.
Innifaldar eru 3 fullunnar myndir með möguleika á að kaupa fleiri myndir ef fleiri góðar myndir nást. Myndirnar eru afhentar í netupplausn, bæði í lit og svarthvítu.
Verð: 35.000 kr.
Portrett utandyra
Um 30–45 mínútna myndataka á höfuðborgarsvæðinu.
Innifaldar eru 3 fullunnar myndir með möguleika á að kaupa fleiri myndir ef fleiri góðar myndir nást. Myndirnar eru afhentar í netupplausn, bæði í lit og svarthvítu.
Verð: 45.000 kr.
Innifalið
Um 30 mínútna myndataka í stúdíói eða 30–45 mínútna myndataka utandyra
3 fullunnar myndir
Aðgangur að myndasafni til að velja myndir
Ef þú ert með ákveðna hugmynd eða vilt útfæra myndatökuna á annan hátt er alltaf hægt að hafa samband og finna lausn sem hentar þér.
Annað
Allar myndir í prentupplausn: 10.000 kr.
1 mynd í prentupplausn: 2.500 kr.
Hver aukamynd, unnin í netupplausn: 3.500 kr.
Við kaup á 3 eða fleiri aukamyndum: 3.000 kr. á mynd
-

Viðburðir & Bakvið tjöldin
Tek að mér ljósmyndun á alls kyns viðburðum, allt frá tónleikum, sýningum og sviðsverkum til opnana og annarra tilefna þar sem eitthvað er að gerast.
Ég tek einnig að mér BTS-ljósmyndun, þar sem áherslan er á að fanga ferlið, stemninguna og augnablikin á bak við verkefnið.
Hver viðburður er einstakur og því er best að senda mér smá upplýsingar um verkefnið, umfangið og tímasetninguna. Þá finnum við saman útfærslu sem hentar ykkur.Hafðu samband fyrir verðtilboð og nánari upplysingar.
-

Kynningarefni / Promo
Vantar þig nýtt kynningarefni fyrir tónlistarverkefnið, hljómsveitina, sýningu eða annað skapandi verkefni?
Ég tek að mér ljósmyndun fyrir listamenn, hljómsveitir og önnur verkefni þar sem myndirnar eiga að endurspegla bæði einstaklinginn og það sem hann er að skapa.
Hvort sem um er að ræða einfaldar portrettmyndir, heildstætt kynningarefni eða myndir fyrir útgáfu, samfélagsmiðla og annað kynningarefni, þá er alltaf hægt að sníða myndatökuna að verkefninu.
Sendu mér upplýsingar um verkefnið og ég set saman tilboð sem hentar þínum þörfum.
-

Fjölskyldan
60 mínútna myndataka í stúdíói fyrir eina fjölskyldu. Ef um stórfjölskylduna er að ræða er alltaf hægt að hafa samband við mig og finna sérlausn.
Innifaldar eru 5 fullunnar myndir með möguleika á að kaupa fleiri myndir ef fleiri góðar myndir nást. Myndirnar eru afhentar í netupplausn, bæði í lit og svarthvítu.
Verð: 59.000 kr.
Innifalið
60 mínútna myndataka í stúdíói
5 fullunnar myndir
Aðgangur að myndasafni til að velja myndir
Ég legg áherslu á afslappað og rólegt andrúmsloft þar sem öllum líður vel. Fyrir mér snýst fjölskyldumyndataka ekki um props eða flóknar uppstillingar — minna er meira. Markmiðið er einfaldlega að fanga ykkur eins og þið eruð og skapa myndir sem varðveita tengslin og augnablikin á einlægan hátt.
Fjölskyldan, útiMyndataka utandyra á höfuðborgarsvæðinu fyrir eina fjölskyldu. Ef um stórfjölskylduna er að ræða er alltaf hægt að hafa samband við mig og finna sérlausn.
Innifaldar eru 5 fullunnar myndir með möguleika á að kaupa fleiri myndir ef fleiri góðar myndir nást. Myndirnar eru afhentar í netupplausn, bæði í lit og svarthvítu.
Verð: 65.000 kr.
Innifalið
Allt að 60 mínútna myndataka utandyra
5 fullunnar myndir
Aðgangur að myndasafni til að velja myndir
Í útimyndatökum legg ég áherslu á að umhverfið taki ekki yfir heldur vinni með okkur að því að skapa fallega stemningu á myndunum.Birtan og veðrið geta haft mikil áhrif á útkomuna og því getur þurft að færa myndatökuna ef veðurskilyrði eru ekki hagstæð á tökudegi.
Annað
Allar myndir í prentupplausn: 10.000 kr.
1 mynd í prentupplausn: 2.500 kr.
Hver aukamynd, unnin í netupplausn: 3.500 kr.
Við kaup á 3 eða fleiri aukamyndum: 3.000 kr. á mynd
-

Brúðkaup
Brúðkaupsdagurinn er fullur af stórum og smáum augnablikum sem dýrmætt er að varðveita um ókomna tíð. Ég legg áherslu á að vera með þægilega og eins ósýnilega nærveru og hægt er, á meðan ég fanga ekki aðeins stóru stundirnar, heldur líka stemninguna, tilfinningarnar og allt þar á milli.
Pakki 1 — Brúðkaupsportrett
Útimyndataka fyrir eða eftir athöfn.
Allar góðar myndir úr myndatökunni eru fullunnar og afhentar, bæði í lit og svarthvítu.
Verð: 85.000 kr.
Pakki 2 — Athöfn & portrett
Ljósmyndun við athöfn og portrettmyndataka fyrir eða eftir athöfn.
Allar góðar myndir frá athöfninni og portrettmyndatökunni eru fullunnar og afhentar.
Verð: 175.000 kr.
Pakki 3 — Athöfn, portrett & veisla
Ljósmyndun við athöfn, portrettmyndataka og allt að 1,5 klukkustund í veislu.
Allar góðar myndir frá athöfn, portrettmyndatöku og veislu eru fullunnar og afhentar.
Verð: 275.000 kr.
Pakki 4 — Allur dagurinn
Ljósmyndun frá undirbúningi um morguninn, athöfn, portrettmyndataka og veisla.
Allar góðar myndir frá deginum eru fullunnar og afhentar.
Verð: 350.000 kr.
Annað
Brúðkaupsbók með myndum frá deginum: 35.000 kr.
Ef dagurinn ykkar passar ekki alveg inn í þessa pakka er alltaf hægt að hafa samband og ég set saman sérsniðið tilboð sem hentar ykkur og ykkar degi.
-

Meðgöngumyndir
Meðgöngumyndataka er einstakt tækifæri til að varðveita minninguna um þennan sérstaka tíma.
Stúdíó eða heima
Myndatakan getur farið fram í stúdíói eða heima hjá ykkur.Innifaldar eru 5 fullunnar myndir með möguleika á að kaupa fleiri myndir ef fleiri góðar myndir nást. Myndirnar eru afhentar í netupplausn, bæði í lit og svarthvítu.
Verð: 59.000 kr.
Utandyra
Myndatakan fer fram utandyra á höfuðborgarsvæðinu.
Innifaldar eru 5 fullunnar myndir með möguleika á að kaupa fleiri myndir ef fleiri góðar myndir nást. Myndirnar eru afhentar í netupplausn, bæði í lit og svarthvítu.
Verð: 65.000 kr.
Maki og/eða systkini eru velkomin með á myndirnar ef þess er óskað.
Innifalið
Myndataka í stúdíói, heima hjá ykkur eða utandyra
5 fullunnar myndir
Aðgangur að myndasafni til að velja myndir
Mikilvægast fyrir mér er að myndatakan sé í takt við þínar óskir og að þér líði vel. Ég legg áherslu á afslappað og rólegt andrúmsloft þar sem myndatakan fær að flæða á eðlilegan hátt.
Ég trúi því að minna sé meira, og í meðgöngumyndatökum á það sérstaklega vel við. Markmiðið er að skapa einlægar myndir sem varðveita minninguna um þennan einstaka og dýrmæta tíma.
AnnaðAllar myndir í prentupplausn: 10.000 kr.
1 mynd í prentupplausn: 2.500 kr.
Hver aukamynd, unnin í netupplausn: 3.500 kr.
Við kaup á 3 eða fleiri aukamyndum: 3.000 kr. á mynd
Annað verkefni í huga?
Ég tek einnig að mér önnur verkefni og sérsniðnar myndatökur. Sendu mér endilega smá upplýsingar um það sem þú hefur í huga og ég set saman tilboð sem hentar verkefninu.